tvær myndir af vinnusvæðinu sem syna mismun eftir tíma

Sagan skráð af framkvæmdunum

Um þessar mundir eru liðin tvö ár frá því reglulegar myndatökur hófust af gangi mála við byggingaframkvæmdirnar og á þeim tíma hafa um 20.000 ljósmyndir safnast í sarpinn frá vélinni sem þetta sýnishorn birtir. Þannig er bæði hægt að sjá gang mála frá degi til dags en líka verður mögulegt að gera “timelapse” myndasyrpu og horfa þannig á mannvirkið mikilfenglega spretta upp úr sverðinum.