Samningur NLSH og Hýsi – Verkheimar vegna matsdeildar bráðamóttöku LSH í Fossvogi

Í dag var undirritaður samningur Nýs Landspítala ohf. við Hýsi - Verkheima ehf. vegna stækkunar á matsdeild bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Um er að ræða húsnæði sem byggt í formi færanlegra eininga og er hugsað sem viðbótarhúsnæði þar til ný bráðamóttaka opnar í meðferðarkjarnanum við Hringbraut. Gert er ráð fyrir því að húsnæðið getið verið nýtt á annan hátt síðar meir á staðnum eða flutt annað. Verklok samnings og skil húsnæðis eru í upphafi desember á þessu ári. Um verður að ræða mikla þjónustuviðbót í fullkomnu heilbrigðistengdu húsnæði, en mikið álag hefur verið á bráðamóttöku á liðnum árum. Verulega hefur þrengt að miðað við núverandi húsakost.

Verkið er í formi alverktöku vegna hönnunar, framleiðslu á húseiningum og verklegri framkvæmd alls um 700 fermetrar. Í húsnæðinu verða meðal annars 20 legurými, vaktherbergi, lín og lager, fundarherbergi og tengigangur yfir í núverandi byggingu bráðamóttöku LSH í Fossvogi.

Samninginn undirrituðu Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH, og Jón Hólmar Steingrímsson framkvæmdastjóri Hýsi - Verkheimum. Auk þeirra vottuðu samninginn Jóhann Gunnar Gunnarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH og Birkir Valur Jónsson verkefnastjóri Hýsi - Verkheimum.

Á mynd: Frá vinstri: Aðalsteinn Jónsson NLSH, Ólafur Birgisson NLSH, Jóhann G. Gunnarsson NLSH, Gunnar Svavarsson NLSH, Jón Hólmar Steingrímsson Hýsi - Verkheimum, Guðmundur Þórðarson Glóra ehf., Kristinn Eiríksson Tensio, Jónas Jónatansson NLSH og Birkir Valur Jónsson Hýsi - Verkheimum.