Starfsmenn framkvæmdadeildar Isavia í heimsókn

Það var nýlega sem starfsmenn frá framkvæmdadeild Isavia heimsóttu framkvæmdasvæði NLSH við Hringbraut. Það viðraði vel þennan dag og hópurinn fékk í byrjun bóklega kynningu þar sem framkvæmdastjóri NLSH, Gunnar Svavarsson, fór yfir sviðið og kynnti starfsemi NLSH og helstu framkvæmdaverkefni. Þegar kynningunni lauk þá var boðið upp á skoðunarferð upp á hæðir meðferðarkjarna og þær hæðir aðallega skoðaðar þar sem innanhússfrágangur er hafinn.

Jóhann G. Gunnarsson, staðarverkfræðingur NLSH, sá um hópinn í skoðunarferðinni og var heimsóknin vel heppnuð og gestir margs vísari eftir kynninguna og skoðunarferðina.