
Stjórn Læknafélags Íslands í heimsókn
Í lok maí kom stjórn Læknafélags Íslands í heimsókn á verkstað. Heimsóknin var mjög vel heppnuð og hófst á kynningum Gunnars Svavarssonar, framkvæmdastjóra NLSH og Gísla Georgssonar verkefnastjóra á helstu framkvæmdaverkefnum félagsins. Að loknum kynningum þá var gengið um framkvæmdasvæðið og meðferðarkjarninn skoðaður undir stjórn staðarverkfræðinga NLSH Árna Kristjánssonar og Jóhanns G. Gunnarssonar.
Ánægjuleg heimsókn þar sem gestir gátu spurt margs um verkefnið og um framtíðaráætlanir félagsins.