
Tilboð opnuð í jarðvinnu Rannsóknahúss
Tilboð voru opnuð í morgun hjá Ríkiskaupum í útboði nr. 21357 jarðvinna Rannsóknahús.
Fjórir bjóðendur skiluðu inn tilboðum. Kostnaðaráætlun er kr. 170.509.246 (án vsk).
Tilboðin
Tilboðs-fjárhæð | Hlutfall | |
Snókur verktakar ehf | 169.633.302 | 99,5% |
Íslenskir aðalverktakar hf | 205.543.641 | 120,5% |
Urð og grjót ehf | 181.182.500 | 106,3% |
Háfell ehf | 164.381.840 | 96,4% |
Kostnaðaráætlun | 170.509.246 |
Nú mun verkkaupi, NLSH ohf., fara yfir tilboðin og leggja mat á þau. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í júní, og jarðvinna rannsóknahússins hefjist síðar í sumar. Stefnt er að jarðvinnu sé lokið í upphafi árs 2022.
(Fréttin hefur verið uppfærð 16.6.21, en Ríkiskaup gaf út leiðrétta opnnarskýrslu).