
Uppsteypu lokið við nýbyggingu Grensás - þak yfir íþróttahús næst í framkvæmdaröð
Vinna við stækkun Grensásdeildar heldur áfram samkvæmt áætlun og mikilvægum áfanga hefur verið náð. Öllu helsta uppsteypuverki við nýbygginguna er nú lokið og húsið risið í fulla hæð.
„Þetta er mikilvægur áfangi sem markar formlegt lok á uppsteypunni. Þrátt fyrir umfangsmikla verkþætti og þröngan framkvæmdaramma hefur verkið haldist innan tímaramma og samstarfið við starfsfólk Grensásdeildar gengið afar vel,“ segir Kristinn Jakobsson, verkefnastjóri hjá NLSH.
Áfram verður unnið að fráveitu-, raf- og loftræsilögnum innanhúss og frágangi í kjallara nýbyggingarinnar sem og eldri byggingu. Stefnt er að verklokum haustið 2026.