
Vinnustofa um GMP svæði í nýjum byggingum Landspítala
Nýverið var haldin vinnustofa þar sem farið var yfir stöðu hönnunar þriggja GMP svæða (Good Manufacturing Practices) í nýjum byggingum Landspítala.
Þessi svæði eru:
• Lyfjablöndun
• PET framleiðsla
• Frumumeðferðarkjarni
Þessi svæði gegna lykilhlutverki í lyfjaframleiðslu og meðhöndlun viðkvæmra lyfja, þar sem gilda ströng skilyrði um góða framleiðsluhætti (GMP) .
Markmið vinnustofunnar var að meta núverandi stöðu hönnunar með tilliti til GMP og gerð leiðarvísis sem tryggir að þessi svæði uppfylli kröfur GMP.
Þátttakendur í vinnustofunni voru NLSH, LSH og COWI Noregi.