I0099 Birgjalisti fyrir UT verktaka
Nýr Landspítali ohf., kt. 500810-0410, Vatnsmýrarvegi 22, 101 Reykjavík, (hér eftir nefndur „verkkaupi“) óskar eftir þátttakendum á birgjalista fyrir UT verkefni.
Hlutverk NLSH er að tryggja að allir þættir er snúa að upplýsingatækni, þ.m.t. hugbúnaður sé til staðar við flutning LSH í nýjar byggingar og samhæfing þeirra og virkni sé með fullnægjandi hætti og stuðli að aukinni hagkvæmi, bættu notendaviðmóti og bættri þjónustu spítalans. Helstu verkefnisflokkar snúna að UT verkefnum tengdu nýju rannsóknarhúsi, nýjum lyfjaferlum, byggingum og sjálfvirkni, nýjum tækni- og tækjabúnaði ofl.
Eftirfarandi flokkar eru í boði fyrir þátttákendur:
HugbúnaðarþróunSérsniðin hugbúnaðarþróun: Hönnun, þróun, prófun, innleiðing og viðhald á sérsniðnum hugbúnaðarforritum sem eru sérsniðnar að sjúkrahús þörfum.Þróun vefforrita: Þróun vefforrita, þar með talið framenda- og bakendaþróun.Þróun farsímaforrita: Þróun farsímaforrita fyrir IOS og Adriod stýrikerfi.Viðhald og rekstur hugbúnaðar: Viðhald hugbúnaðarkerfa, lagfæringar á villum (bug fixing) og stuðningur við sérsniðinn hugbúnaðarforrit.Hugbúanðar prófanir: Hugbúnaðarprófanir á forritum eða forritaeiningum innan skilgreindra hugbúnaðarkerfa.
Skýjalausnir:- Þróun skýjalausna: Þróun skýjalausna í þekktum skýjaumhverfum einsog t.d. AWS, Azure og GCP.
Ráðgjafarþjónusta:- Ráðgjafarþjónusta: Veita sérfræði ráðgjöf á sviði upplýsingatækni s.s. hugbúnaðarþróun, tæknihögun, upplýsingarækniöryggi ofl.
Samþætting og forritunarskil:- Hugbúnaðarsamþætting: Samþætting mismunandi hugbúnaðarkerfa og forrita.- Þróun og samþætting forritunarskila: Þróun og samþætting forritunarviðmóta (API).- Viðhald og stuðingur við samþættingarlausnir og forritunarskil (API): Viðvarandi viðhald, villuleiðréttingar og stuðningur við núverandi samþættingarlausnir sjúkrahúshugbúnaðar.
Þátttakendur geta tekið þátt í fleiri flokkum en einum.
Um er að ræða staðarvinnu, þ.e öll vinna við verkefnin sem unnin verða á þessum birgjalista fari fram á hjá Nýjum Landspítala eða eftir nánara samkomulagi á milli verkkaupa og verksala.