I2064 Lyftur fyrir meðferðarkjarna og rannsóknahús

Nýr Landspítali ohf kt. 500810-0410 (NLSH) óskar eftir tilboðum í 25 lyftur, til fólks-, sjálfvirka AGV vagna- og vöruflutninga. 19 lyftur verða settar upp í meðferðarkjarna og 6 lyftur verða settar upp í rannsóknahúsi.

Lyfturnar verða til notkunar á meðan á byggingaframkvæmdum vegna meðferðarkjarna og rannsóknarhúss stendur og eftir að byggingarnar hafa verið afhentar Landspítala til notkunar

Í verkinu felst eftirfarandi:

  • hönnun, framleiðsla, flutningur og uppsetning á lyftunum
  • hönnun og uppsetning viðbótar stálvirkis í lyftugöngum þar sem þörf er á til samræmis við kröfur framleiðanda
  • hönnun og uppsetning á endanlegri lýsingu, raflögnum og tenglum í lyftugöngum
  • uppsetning á hlífðarveggjum innan í lyftum, veggjum, gólf og loft sem verður fjarlægt við lok framkvæmdatíma
  • þjónustusamningur fyrir viðhald og rekstur

Sjá nánar á utbodsvefur.is

Skilafrestur tilboða er til 16. júní 2025 kl 13:00