Fréttasafn: ágúst 2015

Fyrirsagnalisti

Ný skýrsla um staðarval vegna nýs Landspítala - 31. ágúst 2015

Í dag var birt ný skýrsla sem unnin var af KPMG ráðgjöf.

Niðurstaða hennar sýnir að ekki sé tilefni til að breyta fyrirliggjandi ákvörðun um að byggja nýjan spítala við Hringbraut.

Í skýrslunni voru yfirfarin fyrirliggjandi gögn um hagkvæmni þess að byggja nýjar sjúkrahúsbyggingar við Hringbraut.

Hlutverk KPMG var að yfirfara fyrirliggjandi gögn um hagkvæmni, kostnað, skipulagsmál og staðarval Nýs Landspítala (NLSH) og skrifa samantekt um helstu niðurstöður. Verkefni KPMG eftirfarandi:

  • Rýna í helstu fyrirliggjandi gögn og skýrslur sem varða hagkvæmni, kostnað og skipulagsmál vegna staðsetningar NLSH.
  • Yfirfara helstu forsendur og útreikninga á hagkvæmni verkefnisins.
  • Yfirfara helstu forsendur að baki því að Hringbraut var valin sem framtíðarstaðsetning.
  • Yfirfara helstu efnisatriði þeirrar gagnrýni sem fram hafa komið á staðarval.
  • Leggja sjálfstætt og óháð mat á það hvort Hringbraut sé besti kostur með tilliti til hagkvæmni og annarra helstu áhrifaþátta miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja.
Lesa meira

Heppilegasta staðsetning nýs Landspítala er við Hringbraut - 28. ágúst 2015

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, birtir í dag á heimasíðu spítalans vikulegan pistil.

Lesa meira
New national hospital

Alþingi taki af allan vafa – Landspítali í forgang - 25. ágúst 2015

Í Morgunblaðinu 28.8 skrifar Reynir Arngrímsson formaður Læknaráðs Landspítalans um mikilvægi þess að hefja hið fyrsta byggingu nýs þjóðarsjúkrahúss við Hringbraut.

Lesa meira
New national hospital

Landspítalinn – sjúkrahús og háskóli - 17. ágúst 2015

Í Morgunblaðinu 15.8 skrifar Reynir Arngrímsson formaður Læknaráðs Landspítalans um mikilvægi samstarfs Landspítala við Háskóla Íslands.  Reynir færir rök fyrir þvi að Nýr Landspítali eigi að rísa við Hringbraut.

 

Lesa meira