Sjúkrahótel
Á Hringbrautarlóðinni er risið 75 herbergja sjúkrahótel. Þaðan er innangengt yfir í meginstarfseiningar Landspítala.
Sjúkrahótelið er 4.300 m2 á fjórum hæðum og er gert ráð fyrir stækkunarmöguleika sem nemur 40 herbergjum til norðurs. Hótelherbergin taka mið af ólíkum þörfum gesta og á hótelinu eru bæði einstaklingsherbergi, fjölskylduherbergi og herbergi fyrir fatlað fólk. Á jarðhæð hótelsins er bjartur og rúmgóður veitingasalur í hlýlegu umhverfi. Sólstofa er á þakhæð hússins.Hönnuðir sjúkrahótelsins eru Koan hópurinn sem samanstendur af Yrki arkitektum, Gláma kím, Conís og Raftákn.
Byggingu sjúkrahótelsins er lokið og var afhent Landspítala til rekstrar í febúar 2019. Landspítali sér um rekstur sjúkrahótelsins.