Útboð NLSH

Uppsteypa rannsóknahúss

Nýr Landspítali ohf. óskar eftir tilboðum í verkið: Uppsteypa Rannsóknahúss

Um er að ræða almennt útboð, sbr. 2. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup (OIL) og er ótilteknum fjölda, með almennri útboðsauglýsingu, gefin kostur á að gera tilboð. Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir. 

 Útboð þetta tekur til uppsteypu vegna byggingar Rannsóknahúss á lóð Landspítala við Hringbraut. Heildarflatarmál er 17.808 fermetrar á fimm hæðum með tveimur kjöllurum. 

Fyrirspurnir varðandi verkefni 22099 skulu sendar rafrænt í gegnum TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnartími rennur út 28. ágúst 2023. 

Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið Tendsign.is fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 5. september 2023. 

Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/. 

Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa. 

Sjá nánar á www.utbodsvefur.is

Útboðsnúmer: I22099

Opnun tilboða: 5.9.2023 kl 10:00

Sjá opnunarskýrslu