Útboð NLSH

Lyftur fyrir Nýjan Landspítala

Nýr Landspítali ohf (NLSH) óskar eftir tilboðum í sex (6) víradrifnar lyftur, til fólks-, sjálfvirka AGV vagna- og vöruflutninga. Í heildina mun NLSH kaupa inn um 30 lyftur og nær útboð þetta einungis til 6 þeirra.

Lyfturnar verða til notkunar á meðan á byggingaframkvæmdum meðferðarkjarna og rannsóknarhúss stendur og eftir að byggingarnar hafa verið afhentar Landspítala til notkunar.

Í verkinu felst eftirfarandi:

hönnun, framleiðsla, flutningur og uppsetning á lyftunum
hönnun og uppsetning viðbótar stálvirkis í lyftugöngum þar sem þörf er á til samræmis við kröfur framleiðanda
hönnun og uppsetning á endanlegri lýsingu, raflögnum og tenglum í lyftugöngum
uppsetning á hlífðarveggjum innan í lyftum, veggjum, gólf og loft sem verður fjarlægt við lok framkvæmdatíma
þjónustusamningur fyrir viðhald og rekstur

Sjá nánar á utbodsvefur.is

Útboðsnúmer: I2080

Opnun tilboða: 17.4.2024 kl 13:00

Sjá opnunarskýrslu