Útboð NLSH

Grensás Uppsteypa og fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í útboðsverkið: Grensás - Uppsteypa og fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss. 

Reisa á nýbyggingu (4.400 m2) vestan við núverandi húsnæði þar sem komið verður upp aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun með tengingum við núverandi byggingar. Í nýbygginu verður einnig komið fyrir nýrri 19 rúma legudeild og aðstöðu fyrir sjúklinga, útisvæði og tómstundarými ásamt nýju eldhúsi og matstofu.

Verkefni þetta nær til burðarvirkja og fullnaðarfrágangs á ytra byrði og innanhúss. Þeir verkþættir sem taldir eru upp í yfirliti yfir verkefnið eru stærstu verkþættir verkefnisins en ekki fullnaðarupptalning. Bjóðandi skal yfirfara teikningar, verklýsingar og tilboðsskrá.

Helstu verkþættir verkefnisins eru:

Burðarvirki

  • Uppsteypa
  • Stálburðarvirki

Frágangur utanhúss 

  • Einangrun og utanhússklæðning
  • Þakfrágangur

Frágangur innanhúss

  • Ílagnir og rykbinding
  • Málun
  • Milliveggir
  • Niðurtekin loft
  • Innréttingar

Lagnir

  • Fráveitu- og neysluvatnskerfi
  • Hreinlætisbúnaður
  • Vatnsúðunarkerfi
  • Loftræsing
  • Gas- og þrýstiloftskerfi

Raflagnir

  • Lágspennulagnir þ.e. sökkul skaut, töflur og lýsingakerfi
  • smáspennulagnir þ.e. jarðbindingar, fjarskiptakerfi, brunaviðvörunarkerfi og hússtjórnarkerfi

Bent er á að verkið er unnið í mikilli nálægð við sjúkrahús sem er í fullum rekstri allan verktímann og íbúðabyggð og skal verktaki taka fullt tillit til þess eins og víða er getið í verklýsingu.

Sjá nánar á utbodsvefur.is: Grensás uppsteypa og fullnaðarfrágangur utan- og innanhúss (utbodsvefur.is)

Útboðsnúmer: I4073

Opnun tilboða: 28.5.2024 kl 10:00