Opnunarskýrsla

Bílakjallari Sóleyjartorg - uppsteypa

Uppsteypa tveggja hæða bílakjallara undir Sóleyjartorgi ásamt tengigöngum sunnan Landspítala. Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Bílakjallarinn verður staðsettur milli meðferðarkjarna og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeildar Landspítalans austan við torgið, sem er sunnan megin við Gamla Landspítalann. Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum og verða þar um 180 bílastæði fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða að koma í heimsóknir. Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 m2. Um var að ræða opið útboð.

Kostnaðaráætlun verkkaupa 1.543.162.114 (100%)

Eftirfarandi tilboð bárust:

Eykt 2.166.933.211 (140,4%)

ÞG verk 1.409.947.926 (91,4 %)

Tölurnar eru án vsk.