• Nýbygging við Grensásdeild

Nýbygging við Grensásdeild

Grensásdeild er endurhæfingardeild Landspítala, en þangað koma sjúklingar til endurhæfingar eftir að hafa lokið meðferð á öðrum deildum spítalans. Algengast er að sjúklingar komi í sérhæfða sjúkra- og iðjuþjálfun, talþjálfun eða viðtöl og meðferðir hjá fjölmörgum sérfræðingum endurhæfingardeildarinnar. 

Núverandi húsnæði Grensásdeildar er komið til ára sinna og styður ekki við nýjustu þekkingu og þróun hjálpartækja og búnaðar í endurhæfingu mænuskaðaðra og mikið slasaðra einstaklinga. Byggja á um 4.400m2 nýbyggingu sérsniðna fyrir þjálfunarstarfsemi Grensásdeildar og nýja legudeild, en einnig verður þar nýr matsalur og ýmis önnur samverurými ásamt tilheyrandi stoðrýmum. 

Áhersla verður á þarfir sjúklingsins til endurhæfingar og uppbyggingar, en einnig á velferð starfsfólks, aðgengi fyrir alla og góða hljóðvist, ljósvist og innivist. Í síðari áfanga verkefnisins verður eldra húsnæði endurgert og endurskipulagt fyrir þann hluta starfseminnar sem er léttari hvað varðar húsnæði og tæknikerfi.