Hrafnsgata lokuð bílaumferð út september

11. ágúst 2023

Hrafnsgata framan við gamla Landspítala verður lokuð út september vegna framkvæmda tengdum tengigöngum við nýjan meðferðarkjarna spítalans. Gatan liggur fyrir framan gömlu aðalbyggingu stofnunarinnar og er einstefnugata frá austri til vesturs. Þetta kemur fram í tilkynningu spítalans. Við vesturenda gamla spítalans eru nokkur bílastæði og verða þau aðgengileg áfram frá götu sem liggur meðfram kvennadeildahúsinu. Þá verður áfram hægt að ganga um Hrafnsgötuna.

Sjá nánar hérna