Fréttasafn: febrúar 2006

Fyrirsagnalisti

New national hospital

Steypa fyrst - spyrja svo - 16. febrúar 2006

Í grein heilbrigðisráðherra í Morgunblaðinu 3. janúar sl. gefur að líta kennslubókardæmi um það hvernig ekki á að standa að stefnumörkun í heilbrigðismálum. Þar lýsir æðsti yfirmaður stefnumörkunar heilbrigðismála því yfir, að hann sé orðinn leiður "á sífelldum stefnuleysisumræðum" þegar hann sem "hinn pólitíski leiðtogi" fjölmennustu þjónustustarfsemi landsins ætti að fagna hverju því tækifæri sem gefst til að árétta stefnu yfirvalda og vera óþreytandi við að skýra ákvarðanir sínar í ljósi þeirrar stefnu. Ráðherrann segir stefnuna hins vegar birtast í ákvörðunum sem teknar eru frá degi til dags og tiltekur ákvarðanir um hin ýmsu hlutverk Landspítala - háskólasjúkrahúss, en lætur lesandanum það eftir að rýna í það hvers konar stefna liggi þar að baki. Þessi nálgun ráðherrans við mörkun stefnu staðfestir niðurstöður rannsóknar minnar á aðdragandanum að sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík á sl. áratug.

Lesa meira
New national hospital

Skipulags- og umhverfisslys í miðborg Reykjavíkur - 11. febrúar 2006

Á undanförnum árum hefur vaknað mikill áhugi á skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu. Fólk hefur látið skipulagsmál sig miklu varða enda mikið í húfi þar sem mikilvæg svæði eins og Vatnsmýrin, Hringbraut, Hafnarsvæðið í Reykjavík hafa verið efst á baugi. Öll þessi umræða, skoðanaskipti og ágreiningur er af hinu góða þar sem hinn almenni borgari lætur heyra í sér með meiri krafti en oft áður. Í þessum pistli ætla ég að bera á borð nokkur dæmi sem hafa verið mikið í umræðunni undanfarið og gera grein fyrir þeim mistökum sem hafa átt sér stað í skipulagi í borginni. Fyrst ætla ég að fjalla lítillega um færslu Hringbrautar og Landsspítalann háskólasjúkrahús (LSH) og á næstu vikum mun ég taka fyrir önnur svæði í miðborg Reykjavíkur.

Lesa meira
New national hospital

Vandlega valinn staður fyrir nýja háskólasjúkrahúsið - 1. febrúar 2006

Bygging nýja háskólasjúkrahússins sem er að hefjast verður mesta framfaramál í íslenskri heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisvísindum á Íslandi um langa hríð.  Staðsetningin var ákveðin eftir vandaða undirbúningsvinnu með þarfir sjúklinga í huga,  þarfir samfélagsins fyrir auknar rannsóknir í heilbrigðisvísindum í tengslum við landssjúkrahúsið og vilja og þarfir borgarinnar.  Aðdragandi nýbyggingarinnar hefur verið langur, mjög vel skipulagður og fjölmargir hafa þar átt hlut að máli. 

Lesa meira