Fréttasafn: apríl 2015

Fyrirsagnalisti

New national hospital

Uppbygging Landspítala verður við Hringbraut - 29. apríl 2015

Kjarninn.is birtir viðtal við Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra 29.4.  Í máli Kristjáns kemur fram að það sé engin spurning í hans huga að nýbyggingar Landspítalans muni rísa við Hringbraut. Staðarvalið hafi verið skoðað og endurskoðað þrívegis og niðurstaðan alltaf verið sú að Hringbraut væri besti kosturinn. Þetta kom í ræðu ráðherra á ársfundi Landspítalans. Jafnframt kom fram að 945 milljónir væru ætlaðar í verkframkvæmdir sjúkrahótels og fullnaðarhönnun meðferðarkjarna og að framkvæmdir myndu hefjast í haust. Kristján vék að rökum fyrir ákvörðuninni um staðsetningu.  Hann sagði að dýrara væri að byggja nýtt sjúkrahús frá grunni á öðrum stað en Hringbraut og nálægð við Háskóla Íslands og þekkingarsamfélagið í Vatnsmýrinni skipti einnig miklu máli.

Fréttina má sjá hér

Styttist í útboð við hönnun nýs meðferðarkjarna - 27. apríl 2015

Á vef Ríkiskaupa verður opnað á miðvikudag 29. apríl fyrir útboðsgögn vegna hönnunar á nýjum meðferðarkjarna Landspítala. Meðferðarkjarninn, sem áætlaður er að verði 58.500 m2, verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut.  Um er að ræða opið útboð sem auglýst er á evrópska efnahagsvæðinu.  Útboðið mun standa til 25. júní.  Meðferðarkjarninn er ein af fjórum nýbyggingum í nýjum Landspítala og hin stærsta.

New national hospital

Jarðvinna við sjúkrahótelið hefst brátt - 24. apríl 2015

Í Morgunblaðinu 24.4 er fréttaskýring um framkvæmdir við byggingu sjúkrahótels við nýja Landspítalann. Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra að gangi áætlanir eftir gætu framkvæmdir við byggingu sjúkrahótels hafist í lok júní.

„Ljóst er að ekki verður hvikað frá þeirri ákvörðun að byggja þjóðarsjúkrahúsið við Hringbraut“ segir heilbrigðisráðherra.  Fram kemur í máli Stefáns Veturliðasonar aðal verkefnastjóra sjúkrahótelsins að reiknað sé að vinna mestu jarðvinnuna í sumar þegar minnst er um að vera á spítalanum.

Sjúkrahótelið er fyrsta nýbyggingin af fjórum í nýjum Landspítala og stefnt er að því að henni verði lokið á vormánuðum árið 2017.

New national hospital

Landssamband eldri borgara styður byggingu nýs Landspítala við Hringbraut - 15. apríl 2015

Fram kemur í tilkynningu frá Landssambandi eldri borgara að félagið telji allar hugmyndir um að falla frá byggingu nýs Landspítala óásættanlegar og að breytingar muni seinka byggingu um mörg ár. Einnig kemur fram að eðlilegt sé að tengja eldra húsnæði Landspítala við Hringbraut við fyrirhugaðar nýbyggingar og hvetur jafnframt að framkvæmdir hefjist sem fyrst.

Fréttina má sjá hér.

New national hospital

Hagkvæmast að byggja við Hringbraut - 4. apríl 2015

Í dag er haft eftir Degi B.Eggertssyni borgarstjóra að mikilvægt sé í umræðunni um nýjan Landspítala að nýta eigi eldri húsakort og tengja þær við nýjar byggingar. Dagur segir að þetta geri staðsetn­ingu nýs spít­ala við Hring­braut að mun hag­stæðari kosti en aðrar staðsetn­ing­ar.  Hann fer yfir hversu dýrt það væri að byggja nýjan spítala frá grunni og hversu hagkvæmt hann telur að sameina spítalastarfsemina við Hringbraut sem mest.

Dagur segir m.a. á Facebókar síðu sinni: „það er fagnaðarefni að málefni Landspítalans séu komin aftur í brennipunkt. Það er fátt mikilvægara en að endurnýja húsakost spítalans og allir þeir sem vilja búa í samkeppnishæfu velferðarsamfélagi ættu að berjast fyrir því“

Fréttina má sjá hér