Fréttasafn: janúar 2013

Fyrirsagnalisti

Erfiðara að kljást við farsóttir - 28. janúar 2013

Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala, segir meðal annars í viðtali við fréttavefinn mbl.is að mikið af húsnæði Landspítala ekki byggt fyrir þá starfsemi sem fari þar fram í dag, þar vanti bæði einbýli og salerni. Sá skortur leiði til þess að erfiðara sé að kljást við farsóttir.

Lesa meira

Kynntu nýjar spítalabyggingar á Læknadögum - 28. janúar 2013

Verkefnið um nýjan Landspítala var kynnt á Læknadögum 2013 sem haldnir voru í Hörpu liðna viku. Fjölmargir lögðu leið sína um kynningarbás verkefnisins en þau Jóhannes M. Gunnarsson læknir, Gyða Baldursdóttir hjúkrunarfræðingur og Gísli Georgsson verkfræðingur, öll verkefnisstjórar fyrir Nýjan Landspítala, fræddu gesti um verkefnið.  

Lesa meira

Skortur á einbýlum ein meginástæða - 14. janúar 2013

Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala, segir að skortur á einbýlum sé ein meginástæða fyrir kröfu um nýjan spítala, að því er fram kom í frétt Stöðvar 2 um helgina.

Lesa meira

Myglusveppur á Landspítala - 9. janúar 2013

Morgunblaðið greindi frá því í dag að myglusveppur hafi komið upp í nokkrum herbergjum í byggingu Landspítalans við Hringbraut. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að verið sé að meta það hvort loka þurfi herbergjum og legurýmum.

Lesa meira