Fréttasafn: janúar 2015

Fyrirsagnalisti

New national hospital

Framkvæmdir hefjast við sjúkrahótel LSH - 20. janúar 2015

Framkvæmdir við nýtt sjúkrahótel Landspítalans munu hefjast  í apríl.
Um 945 milljónir króna eru veittar á fjárlögum til nýrra bygginga spítalans, þar á meðal sjúkrahótels. Sjúkrahótelið verður fjögurra hæða og 77 herbergja.

Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra að mikil hagræðing verði með sjúkrahótelinu sem muni spara spítalanum fjármuni.

Lesa meira
New national hospital

Starfsaðstaða verði bætt með byggingu nýs Landspítala - 8. janúar 2015

Fulltrúar Læknafélags Íslands, Skurðlæknafélags Íslands og ríkisstjórnarinnar undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um markvissa uppbyggingu heilbrigðiskerfisins.

Meðal helstu atriða í yfirlýsingunni er bygging nýs Landspítala og markviss endurnýjun tækjabúnaðar í heilbrigðiskerfinu, en hvoru tveggja er ætlað að bæta starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og þjónustu við almenning.

Lesa meira