Fréttasafn: júní 2012

Fyrirsagnalisti

New national hospital

Endurnýjun Landspítala brýnt þjóðþrifamál - 26. júní 2012

Þriðji hver Íslendingur, hvaðanæva af að landinu fær árlega þjónustu á Landspítala. Því er endurnýjun spítalans, sem nú stendur fyrir dyrum, mál allra landsmanna. Hagur sjúklinga er hafður í fyrirrúmi við þá uppbyggingu sem framundan er. Nýr spítali mun tryggja að Landspítali standi undir nafni sem þjóðarspítali sem tryggir að íslensk sjúkrahúsþjónusta standi jafnfætis þjónustu í löndum sem við berum okkur saman við. Með samhliða uppbyggingu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands skapast vel boðlegt kennslu- og rannsóknarumhverfi háskólaspítala.

Mikill akkur er í því að endurnýja spítalann. Endurnýjunin mun í senn auka öryggi sjúklinga, bæta meðferðarmöguleika og aðstæður og skapa hagkvæmara rekstrarumhverfi.  Áætlanir gera ráð fyrir að lokið verði við fyrsta áfanga í ársbyrjun 2018.

Lesa meira
New national hospital

Betri aðbúnaður sjúklinga í augsýn - 20. júní 2012

Fyrirhuguð endurnýjun Landspítala við Hringbraut snýst fyrst og fremst um bætta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi eflist mjög við flutning í nýtt húsnæði á nýjum spítala. Þar munu gjörgæsludeildir í Fossvogi og Hringbraut sameinast á einum stað, sem hefur í för með sér ýmsa kosti og hagræðingu.

Lesa meira
New national hospital

Landspítali – öryggisnet í eigu og þágu þjóðar - 20. júní 2012

Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækningaSigríður Gunnarssdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunarSífellt aukin krafa er á gæða- og öryggismál á sjúkrahúsum. Reynslan sýnir að sjúkrahús á Vesturlöndum eru ekki eins örugg og halda mætti og á undanförnum árum hefur orðið mikil vitundarvakning um þessi mál og öflug alþjóðasamtök sett þau í forgang. Neytendur gera vaxandi kröfur til þess að þjónustan sé bæði skilvirk og örugg. Segja má að spítalar séu í eðli sínu óöruggir, vegna þeirra flóknu verkefna sem þeir sinna og þess hversu viðkvæmir skjólstæðingar þeirra eru. Þess vegna er brýnt að gera sérstakar ráðstafanir á sjúkrahúsum til að auka öryggi og gæði þjónustunnar og vinna stöðugt að umbótum á starfseminni.

Lesa meira
New national hospital

Nútímalegt sjúkrahús - hvað þarf til? - 2. júní 2012

Stórstígar breytingar eru á starfsemi sjúkrahúsa frá ári til árs. Miklar framfarir hafa undanfarið orðið í rannsóknum og meðferð sjúklinga, sem margar hverjar fela í sér nýjar tæknilausnir. Þær þjóðir sem vilja bjóða sjúklingum góða þjónustu standa því frammi fyrir áskorunum um að reisa nýjar byggingar sem hæfa nútímalegri sjúkrahússtarfsemi. Nýbygging Landspítala við Hringbraut snýst um að íslensk sjúkrahúsþjónusta haldi takti við þróun þekkingar og tækni.

Lesa meira
New national hospital

Guðlaugur Gauti leiðréttur - 1. júní 2012

Guðlaugur Gauti Jónsson arkitekt skrifar grein í Fréttablaðið fimmtudaginn 31. maí um nýjan Landspítala. Það er ekki mitt að finna að stílbrögðum annarra. Ég tel þó nauðsynlegt að leiðrétta Guðlaug Gauta því hann gefur sér rangar forsendur og dregur af þeim stóryrtar fullyrðingar. 

Lesa meira