• New national hospital

Guðlaugur Gauti leiðréttur

1. júní 2012

Guðlaugur Gauti Jónsson arkitekt skrifar grein í Fréttablaðið fimmtudaginn 31. maí um nýjan Landspítala. Það er ekki mitt að finna að stílbrögðum annarra. Ég tel þó nauðsynlegt að leiðrétta Guðlaug Gauta því hann gefur sér rangar forsendur og dregur af þeim stóryrtar fullyrðingar. 

Guðlaugi Gauta er tíðrætt um aukna umferð og áhrif af henni á umhverfið. Nú er það svo að bygging nýs Landspítala felur aðallega í sér að flytja starfsemi Landspítala úr Fossvogi og sameina hana annarri starfsemi Landspítala við Hringbraut. Áhrif af þessum flutningi á umferð eru hverfandi, en þetta hefur komið skýrt fram í rannsóknum á umferð og ferðavenjum starfsfólks. Sem dæmi mun umferð um Miklubraut vestan Lönguhlíðar aukast um 2,8% á sólarhring og um 2,1% um Bústaðaveg vestan Lönguhlíðar. Sú staðreynd að starfsmenn spítalans eru fyrr á ferð til vinnu en flestir aðrir borgarbúar hefur í för með sér að áhrifin eru enn minni en ella. Þá eru komur sjúklinga og gesta á Landspítala dreifðar yfir daginn og falla minnst á annatíma í umferðinni. 

Landspítali liggur vel við almenningssamgöngum, en sjö strætisvagnaleiðir fara hjá lóðinni. Þá er gott göngu- og hjólastígakerfi að lóðinni. Um helmingur starfsmanna býr þannig að hann getur hjólað eða gengið á 14 mínútum eða skemmri tíma til vinnu. 

Guðlaugur Gauti fellur í þá gryfju að taka trúanlega vitleysu sem hann hefur séð á bloggi á netinu. Hann fer að bera saman Smáralind við spítalabyggingar. Það eru ekki fagleg vinnubrögð. Bera verður saman álíka byggingar, enda er verslunarmiðstöð allt öðruvísi bygging en spítali. Staðreyndin er að sú framkvæmd sem á að fara að bjóða út núna er um 75.000 m2 sjúkrahúsbygging og nota á áfram 53.000 m2 af eldri byggingum. Byggingarmagn á lóðinni verður áþekkt því sem menn þekkja vel úr miðbæ Reykjavíkur og hæðir bygginga verða 4-6 hæðir sem sömuleiðis er algengt í miðbænum. 

Guðlaugur Gauti er ekki hrifinn af staðarvalinu án þess að benda á annan stað. Vissulega er ekki hægt að ætlast til þess að allir séu sammála um hvar spítalinn skuli standa. Enda hefur staðarval hans verið rækilega ígrundað og rannsakað og niðurstaðan ávallt verið sú að Hringbraut sé langbesti kosturinn. 

Nokkur rök vega þyngst varðandi uppbygginguna við Hringbraut:  
- Hagkvæmasti kosturinn fjárhagslega – eldri byggingar nýttar áfram. 
- Góð tenging við almenningssamgöngur. 
- Hverfandi áhrif á umferð (2-4%). 
- Nálægð við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans. 

Guðlaugur Gauti telur upp aðferðafræði, svo sem hagkvæmnimat, sem ætti að nota við mat á byggingu nýs Landspítala. Hér hefði arkitektinn átt að kynna sér betur ítarlegan undirbúning verkefnisins áður en hann skrifaði greinina. Hagkvæmnimat hefur verið gert í tvígang af erlendum sérfræðingum. Allar þessar greiningar eru opinber gögn sem eru aðgengileg á heimasíðu verkefnisins www.nyrlandspitali.is