Jarðvinna við grunn rannsóknahússins gengur vel þrátt fyrir rysjótta tíð

4. mars 2022

Jarðvinna gengur vel við grunn rannsóknahúss þrátt fyrir slæm veðurskilyrði í febrúar.

„Þrátt fyrir rysjótt veðurfar undanfarið hefur jarðvinna við grunn rannsóknahúss gengið ágætlega. Samkvæmt áætlun fer sprengingum að ljúka á næstu vikum. Verktaki heldur áfram brottakstri á sprengdu efni ásamt lausum jarðvegi, ásamt því að fara í bergstyrkingar og aðrar öryggisráðstafanir meðfram grunninum,“ segir Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri hjá NLSH.