Markaðskönnun vegna rannsóknatækja fyrir miðlæga rannsóknastofu í klínískri lífefnafræði

29. september 2023

Nýr Landspítali óskar eftir þátttakendum í markaðskönnun (RFI) vegna rannsóknatækja fyrir miðlæga rannsóknastofu í klínískri lífefnafræði, mælingar með mótefnum (e.immunochemistry), blóðmeinafræði og storkurannsóknum í nýju rannsóknahúsi.

Að skráningu lokinni verður haldinn kynningarfundur hjá NLSH á tímabilinu október til nóvember.

Á þeim fundi verður stutt kynning á verkefninu og hver þátttakandi kynnir mögulegar lausnir. Hver þátttakandi fær tvær klukkustundir þar sem áætluð er ein klukkustund í kynningu þátttakanda og að því loknu verður tími til fyrirspurna.