Nær lokið uppsetningu vinnulagna í meðferðarkjarna

30. apríl 2024

Góður gangur er í uppsetningu vinnulagna í meðferðarkjarna. Núna er lokið að setja upp hitablásara ásamt stofnlögnum í báðum kjöllurunum og öllum stöngum auk þess sem lokið hefur verið við að tengja hitablásara í kjöllurunum og stöngum 1 og 2. úið er að koma fyrir tveimur 2 MW varmaskiptum í kjallara, verið er að vinna í tengigrind og við frárennslislagnir og affallslögn fyrir bakrás hitaveitu.

Hvað varðar raflagnir þá hefur verið lokið við að koma stofntöflum fyrir í kjallara og dreifitöflum í báðum kjöllurum, upp stöng 1 og lýsing komin í báða kjallara og 2. hæð í öllum stöngum og auk þess er verið að vinna við lýsingu á 3. hæð. Varaflsvél hefur verið komið fyrir og hún tengd.