Opnun tilboða vegna uppsetningar vinnulagna í meðferðarkjarna og bílakjallara

25. ágúst 2023

Opnuð hafa verið tilboð í uppsetningu vinnulagna í meðferðarkjarna og bílakjallara undir Sóleyjartorgi.

Það innifelur uppsetningu vinnulagna (raf-og pípulagna) í nýbyggingum Nýs Landspítala ohf. 

Eftirtalin tilboð bárust:

Nafn bjóðanda Heildartilboðsfjárhæð án vsk.
Árvirkinn ehf. 433.013.018,-
Eykt ehf. 370.399.707,-
Íslenskir aðalverktakar hf. 412.499.448,-
Tengill ehf. 385.772.712,-
Þelamörk ehf. 313.182.214

Heildarfjárhæð með tímagjöldum, kostnaðaráætlun kaupanda er 415.761.202, (án vsk)