Útboð þakvirki á meðferðarkjarna

28. febrúar 2024

NLSH óskar eftir tilboði í útboðsverkið þakvirki fyrir meðferðarkjarnann.

Verkefni þetta nær til fullnaðarfrágangs á ytra byrði meðferðarkjarna og helstu verkþættir verkefnisins eru:

Frágangur utanhúss:

  • Múrverk
  • Þakfrágangur
  • Járn og blikksmíði

Frágangur á yfirboði ljósgarða:

  • Lögn blandaðrar hellulagnar
  • Ræktunarsvæði og þökulögn

Lagnir og loftræsting:

  • Þakniðurföll og allar regnvatnslagnir innanhúss
  • Útloftun frárennslis á þökum
  • Vatnskranar utanhúss
  • Snjóbræðslulagnir
  • Loftræsihattar og þakstólar

Raflagnir:

  • Lágspennulagnir þ.e. eldingavarnarkerfi

Tilboð verða opnuð 27.mars næstkomandi.

Nánar á:

https://www.nlsh.is/utbod/