Allt á fullri ferð í Hringbrautarverkefninu

14. september 2020

Gunn­ar Svavars­son, fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala, seg­ir að upp­bygg­ing nýs hús­næðis við Hring­braut sé á fullri ferð í viðtali við Morgunblaðið þann 13. september og á mbl.is. Stefnt er að því að upp­steypa á meðferðar­kjarn­an­um, stærsta hús­inu, hefjst inn­an tíðar að sögn Gunn­ars.

„Það gætu verið allt að átta vik­ur í það þar sem yf­ir­ferð er í gangi.“ Á annað hundrað hönnuða og verk­efn­is­stjóra eru við störf á hverj­um degi í hönn­un­ar- og und­ir­bún­ings­verk­efn­um, að sögn Gunn­ars, en ÍAV er einnig á loka­stigi við frá­gang lóðaverk­efn­is og hellu­lagn­ingu. Fljót­lega komi nýr jarðvinnu­verktaki inn á svæðið, til þess að full­vinna frá­gang vinnu­búðareits­ins.

Hlekkur á frétt á mbl.is