Breytt akstursleið að Landspítala við Hringbraut

4. apríl 2019 Framkvæmdir

Frá og með 4. apríl verður breyting á aðkomu að Landspítala við Hringbraut.

Ekki verður lengur hægt að aka að Landspítala í gegnum Gömlu Hringbraut en hingað til hefur verið hægt að keyra inn hluta af henni úr tveimur áttum (Bústaðavegur & Snorrabraut).

Allar nánari upplýsingar um framkvæmdina er að finna á eftirfarandi myndbandi:

Nánari upplýsingar veitir Magnús Heimisson almannatengsla og samskiptastjóri NLSH ohf. GSM 866 1378 eða netfangið magnus@nlsh.is