Forval opnað vegna innri frágangs í meðferðarkjarna

19. desember 2023

Þann 18. desember var forval nr. I4066 opnað, en það lýtur að innri frágangi á 5. og 6. hæðum meðferðarkjarna.

Þátttökubeiðnir bárust frá eftirtöldum aðilum:

1. Eykt
2. Íslenskum aðalverktökum hf
3. Ístaki hf
4. ÞG verktökum

Frávikstilboð voru ekki heimil skv. útboðsgögnum því á c liður 65. gr. OIL ekki við í þessu útboði.

Opnunarskýrsla felur ekki í sér niðurstöðu útboðs. Í opnunarskýrslu er einungis birt heildartilboðsfjárhæð en endanlegt val getur ráðist af fleiri valforsendum skv. útboðsgögnum. Framsetning opnunarskýrslu er með fyrirvara um hugsanlega reiknivillu og að ekki er búið að meta gildi tilboða. Komi í ljós að fjárhæðir í opnunarskýrslu eru ekki réttar miðað við framsetningu tilboðsblaðs og leiðbeiningar um útfyllingu á því, verður leiðrétt opnunarskýrsla birt eins fljótt og unnt er.