Fulltrúar frá Landssjúkrahúsinu og frá heilbrigðisráðuneyti Færeyja heimsóttu framkvæmdasvæði Nýs Landspítala

19. apríl 2022

Í dag komu góðir gestir í heimsókn frá Færeyjum, frá Landssjúkrahúsi og frá heilbrigðisráðuneyti.

Markmið heimsóknarinnar var að kynna sér framkvæmdirnar og ekki síst almannasamskipti við byggingu nýs Landspítala og það viðamikla samráð við ótal aðila sem fram hefur farið á undanförnum árum.

Farið var yfir fjölmiðlagreiningu um verkefnið og um þá greinargóðu upplýsingarmiðlum sem fram fer á vegum Nýs Landspítala.

Að þvi loknu var farið í vettvangsferð um framkvæmdasvæðið.