Húsaþorpið á vinnubúðareit að taka á sig mynd

25. nóvember 2020

Unnið er við samsetningu á húsaeiningum á vinnubúðareit og í dag bættust fleiri hús við þyrpinguna. Vinna er einnig hafin við frágang að innanverðu og samhliða er verið að ganga frá lögnum sem munu tengjast við gámabyggðina þegar starfsemi hefst í húsunum.

„Nú eru komin nítján hús og fjögur komu í dag. Húsin sem komu í dag eru eitt sem snýr í suðvestur og þrjú í suðaustur. Við tökum svo á móti síðustu níu húsunum í næstu viku að öllum líkindum og verið er að vinna við að setja þau saman,“ segir Guðmundur Magnússon hjá Terra verktökum.