Kynningarfundur vegna alverktöku á bílastæða- og tæknihúsi

16. september 2020

Samhliða bygginu Meðferðarkjarna og Rannsóknahúss við Hringbraut verður byggt bílastæða- og tæknihús sem mun þjóna svæðinu. Nú er í gangi forval fyrir alverktöku bílastæða- og tæknihússins. Þann 16 september var haldin kynning í húsnæði NLSH við Skúlagötu fyrir áhugasama í forvalinu. Í forvalinu verða 5 hæfustu fyrirtækin valin og munu þau í framhaldi taka þátt í lokuðu útboði fyrir alverktökuna.