Kynningarfundur vegna jarðvegsframkvæmda fyrir starfsmenn í Læknagarði

18. ágúst 2023

Þann 15.ágúst var haldinn kynningarfundur fyrir starfsmenn í Læknagarði vegna jarðvegsframkvæmda í nálægð við Læknagarð á næstu vikum og mánuðum. Nú er unnið við jarðvinnu við grunn rannsóknahúss og einnig eru framkvæmdir við hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands að hefjast með haustinu. 

Ásbjörn Jónsson og Ólafur M. Birgisson frá NLSH fóru yfir stöðu framkvæmda og þau áhrif sem þær hafa á starfsemi í Læknagarði. 

18-agust-innri