Nokkur útboðsverkefni í farvatninu hjá NLSH

12. júlí 2023

Þessa daga er unnið að nokkrum útboðsverkefnum hjá NLSH að sögn Indriða Waage verkefnastjóra. „Við áætlum að auglýsa þrenn útboð á allra næstu vikum. En við munum gefa góðan tilboðstíma fyrir bjóðendur, þar sem þessi útboð eru stór og tímasetningin gæti reynst einhverjum erfið vegna sumarleyfa starfsmanna.“

Þau útboðsverkefni sem um ræðir eru:

  • Uppsteypa – rannsóknahús
  • Ílagnir fyrir meðferðarkjarna
  • Vinnulagnir fyrir meðferðarkjarna

Vonast er eftir góðri þátttöku í þessum útboðum enda um nokkuð stór útboð að ræða og eru bjóðendur hvattir til að kynna sér vel útboðsgögnin, enda öllum aðgengileg á útboðsvef.is.

Forsíðumynd sýnir grunn rannsóknahúss.