Uppsteypa á bílastæða – og tæknihúsi

10. júlí 2023

Eftir rysjóttan vetur er uppsteypa bílastæða- og tæknihúss komin í betri farveg og framkvæmdir ganga vel. Verktaki hefur sett upp þriðja byggingakranann á vinnusvæðinu og fer starfsmönnum fjölgandi. Unnið er í bílastæðahluta og tæknihluta að sögn Sigurjóns Sigurjónssonar verkefnisstjóra á framkvæmdasviði NLSH.

„Næstar á dagskrá eru kjallarahæðir K3 og K4 og stór plata undir nýjar varaaflsvélar spítalans. Sú plata er 60 cm þykk en plötur almennt eru ekki nema 22 cm á þykkt,“ segir Sigurjón. Tæknihluti hússins hýsir ekki einungis varaaflsvélar heldur einnig kælivélar, varakyndingu ásamt miðstöð fyrir hin ýmsu rafmagnsmál s.s. stóra rafmagnsspenna og rafmagnstöflur og mun þjónusta bæði nýjar og gamlar byggingar spítalans þegar kerfin verða tekin í notkun.