Ný malbikuð bílastæði sunnan við undirgöng Burknagötu

10. desember 2019

Tekin hafa verið í notkun ný malbikuð bílastæði sunnan við undirgöng Burknagötu og eru þau ætluð starfsmönnum og gestum Landspítala og Háskóla Íslands.


Gönguleið frá þessu bílastæði í norður að byggingum LSH er í gegnum nýju undirgöngin undir Burknagötu sem nýlega hefur verið opnuð.