Staðan í samkeppni um listaverk

12. júní 2023

Síðasti dagur til að skila inn tilkynningu um þátttöku í forvali vegna samkeppni um listaverk við nýjan Landspítala var 9. júní. Forvalsnefnd mun nú hefja störf og gert er ráð fyrir að hún ljúki yfirferð sinni um næstu mánaðamót. Þá tekur dómnefnd við keflinu og gert ráð fyrir að í lok árs liggi endanleg niðurstaða fyrir.

Nánar um samkeppnina má lesa á heimasíðu NLSH .