Styttist í vinnu við fyrstu loftaplötur við uppsteypu meðferðarkjarnans

8. september 2021

Uppsteypuverkefnið á nýjum meðferðarkjarna miðar áfram en aðalverktaki uppsteypu verksins er Eykt hf.

“Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru áframhaldandi vinna við mótauppslátt, járnabendingu undirstaðna og jarðskaut sem er vel á veg kominn. Vinna við fyllingar og lagnir í grunni er í fullum gangi sem og vinna við botnplötur. Vinna við kjallaraveggi er í fullum gangi og vinna við fyrstu súlur hófst í byrjun september.

Í framhaldinu verður farið í fyrstu loftaplötur yfir kjallara og áætlað að sú vinna hefjist í byrjun október”, segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH.