Fréttir


Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, skrifaði í dag undir samning við Eykt ehf vegna fullnaðarhönnunar og verkframkvæmdar á nýju bílastæða og tæknihúsi Landspítala við Hringbraut

9. september 2021

Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir,undirritaði í dag samning við Eykt ehf. vegna fullnaðarhönnunar og verkframkvæmdar á nýju bílastæða og tæknihúsi.

Nýtt bílastæða og tæknihús er ein af byggingum í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut og verður um 19.500 fermetrar að stærð.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Samningurinn sem var undirritaður í dag, vegna byggingar bílastæða- og tæknihúss, er mikilvægur sem eitt af mörgum skrefum í þessu stóra uppbyggingarverkefni við Hringbraut. Bílastæða- og tæknihúsið mun gegna veigamiklu hlutverki í starfsemi spítalans, bæði svo hægt sé að leggja bílum og hjólum á svæðinu en einnig fyrir tæknilega starfsemi. Miklu skiptir að bygging hússins hefur umhverfisvæna nálgun.“

Páll D. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar ehf.: “Með Eykt í samstarfinu eru arkitektastofan Tark og verkfræðistofan VSÓ. Við hjá Eykt þekkjum vel til Hringbrautarverkefnisins, en við erum núna að steypa upp meðferðarkjarnann og er þar allt á fullri ferð. Samstarfið gengur vel við Nýja Landspítalann og við munum einhenda okkur í þetta verkefni líkt og önnur.”

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri Nýs Landspítala: „Ákveðið var að fara í alútboð, en þá eru hönnun og framkvæmd boðin út í einum og sama útboðspakkanum. Heildarniðurstaðan var að byggingarfyrirtækið Eykt, varð hlutskarpast. Samningurinn sem hér er skrifað undir er því mikilvægur áfangi sem eitt af mörgum skrefum okkar fram á við í Hringbrautarverkefninu.”

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala: „Þetta er spennandi verkefni sem við hlökkum til að sjá verða að veruleika. Þarna er mikilvægt tæknirými og síðan skiptir máli að tryggja fullnægjandi fjölda bílastæða fyrir þá sem erindi eiga á spítalann. Við lögðum einnig sérstaka áherslu á að það væri gott pláss fyrir reiðhjól í húsinu enda fjölgar stöðugt því starfsfólki sem kýs að koma hjólandi í vinnuna. Það er ánægjulegt að sjá hversu vel uppbyggingunni á Hringbraut miðar og allt starfsfólk Landspítalans fylgist spennt með.“

Um bílastæða og tæknihúsið:

 

Bílastæða- og tæknihúsið er um 19.500 fermetrar að stærð og er í raun átta hæðir, fimm hæðir ofan jarðar og þrjár hæðir neðanjarðar. Bílastæða og tæknihús eða BT húsið eins og það er kallað mun rúma stæði fyrir um 550 bíla.

Í húsinu verður hjólageymsla fyrir 100 hjól þar af um fjórðungur fyrir rafhjól. Bíla- og hjólastæði svæðisins verða til framtíðar nægjanleg miðað við allar framtíðarspár. Einnig er verið að byggja bílakjallara undir Sóleyjartorgi, sambærilegum bílakjallara Hörpunnar sem er á tveimur hæðum þar sem verða 200 bílastæði, aðallega ætluð sjúklingum og gestum.

Þar verður gott aðgengi beint inn í spítalann. Úr Bílastæða og tæknihúsinu verður einnig hægt að ganga á milli húsa eftir göngum. Tæknihluti hússins, T-ið í BT, er afar mikilvægur, þar verður tæknirými fyrir varaaflsvélar Landspítalans þannig að tryggt sé að rafmagn verði til staðar hér á öllu svæðinu ef truflanir verða á afhendingu rafmagns og það sama gildir um búnað fyrir varakyndingu ef skortur verður á heitu vatni. Þá er hér kælikerfi spítalans en loftinntök og öll loftræsing innan spítalans sama hvaða hús það eru sem skiptir verulegu máli í starfseminni. BT húsið mun eins og aðrar byggingar í Hringbrautarverkefninu hafa umhverfisvæna nálgun.