Undirbúningsframkvæmdir vegna malbikunar Burknagötu

25. janúar 2021

Helstu framkvæmdir á vinnubúðasvæðinu eru þær að verið er að undirbúa undir malbikun á Burknagötu.  Steinar Þór Bachmann verkefnastjóri hjá NLSH segir að samhliða sé verið að sinna ýmsum verkum á svæðinu. 

Unnið er við færslu á girðingum innan svæðis og við afmörkun framkvæmdasvæðis. Verið er að flytja til þvottastöð fyrir vinnuvélar frá vestari hluta Burknagötu yfir í austurenda ásamt öryggisþáttum sem snúa að undirbúningi uppsteypu á meðferðarkjarna.