Uppsteypu bílastæða- og tæknihúss miðar vel

16. febrúar 2024

Eykt heldur af krafti áfram að steypa upp bílastæða- og tæknihúsið, sem í daglegu tali gengur undir nafninu BT hús. Í bílastæðahluta hússins eru 16 bílastæðapallar og er búið að steypa 12 þeirra. 

„Uppsteypa hússins er því langt á veg komin en hún er nokkuð háð veðri. Skipst hefur á vorveður og fimbulkuldi auk nokkurra rokdaga og hefur frekar hægt á framleiðslu síðustu vikur. Stefnt er að því að fullljúka húsinu á þessu herrans ári 2024," segir Sigurjón Sigurjónsson verkefnastjóri.