Vinna við fyrsta áfanga gámabyggðar á vinnubúðareit gengur vel

17. desember 2020

Vinna í fyrsta áfanga á vinnubúðareit gengur vel og verið er að undirbúa uppsetningu á mötuneytisaðstöðu. Risin er um 400 fermetra gámabyggð og er unnið við innanhúsfrágang og við undirbúning að áfanga tvö.

„Unnið hefur við síðustu daga við innivinnu hér í mötuneytinu. Búið er að dúkleggja og að sparsla í gólf við vinnu í innveggjum. Verið er að undirbúa lagnavinnu áður en hægt verður að taka á móti salernisbyggingu og fataaðstöðu á næstu dögum, segir Guðmundur Magnússon hjá Terra einingum.