Borgarstjóri heimsækir Hringbrautarsvæðið

30. nóvember 2022

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og Björn Axelsson skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar heimsóttu þann 29. nóvember starfssvæði Nýs Landspítala við Hringbraut, en Reykjavíkurborg hefur mjög reglulega á síðustu árum kynnt sér framgang verkefna NLSH. Reykjavíkurborg er einn af mikilvægu samstarfsaðilum NLSH um uppbygginguna við Hringbraut, sér um skipulagsmál, aðstöðu-, framkvæmda- og byggingarleyfi. Samstarf um skipulagsmál svo og við embætti byggingarfulltrúa er mjög mikið og reynt er að stuðla að þróunarverkefnum til að takast á við sífelldar áskoranir í jafn stóru verkefni og verkefni NLSH er.

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri kynnti stöðu dagsins ásamt stjórnarformanni NLSH, Finni Árnasyni og sviðsstjóra hönnunarsviðs Sigríði Sigurðardóttur.