Götuheiti sótt í lækningajurtir

2. desember 2022

Eins og greint hefur verið frá er nyrðri hluti gatnanna á byggingasvæðinu sóttur til Íslendingasagnanna en á syðri hlutanum er vísað til jurtaríkisins, og sérstaklega að lækningajurtum. Götuheitin eru: Hvannargata, Njólagata, Blóðbergsgata, Burknagata og Fífilsgata.

Meginakstursleiðin gegnum nýbyggingasvæðið er um Burknagötu, nokkurn veginn þar sem Hringbrautin lá áður, og ekki fráleitt að meðferðarkjarninn verði kenndur við þá götu þegar fram í sækir.