Forval vegna hönnunar nýrra Landspítalabygginga auglýst

22. apríl 2013

Nýr Landspítali ohf. auglýsir frá og með deginum á morgun, þriðjudeginum 23. apríl, eftir umsækjendum til að taka þátt í útboði á hönnun nýrra bygginga sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Um er að ræða opið forval bjóðenda auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.

Fjögur aðskilin útboð

Fullnaðarhönnun heildarverkefnisins er skipt upp í fjögur aðskilin hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000 m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús (með skrifstofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel.

Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda og öllum bjóðendum sem uppfylla kröfur forvalsgagna og standast þannig forval, er boðið að taka þátt í lokuðum aðskildum hönnunarútboðum fyrir hverja byggingu fyrir sig, þ.e. meðferðarkjarna,  rannsóknarhús, sjúkrahótel og bílastæðahús. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvalinu.

Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönnun muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir. 

Kynningarfundur 14. maí

Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is frá og með 23. apríl.  Kynningarfundur fyrir væntanlega þátttakendur í forvali verður í Hringsal Barnaspítala Hringsins þriðjudaginn 14. maí nk. kl 14.00 – 16.00.

Opnað verður fyrir umsóknir hjá Ríkiskaupum mánudaginn 22. júlí kl. 11.00.  Miðað er við að niðurstaða forvalsins verði kynnt þriðjudaginn 20. ágúst. 

Undirbúningur vegna fyrsta áfanga uppbyggingar við Hringbraut hefur nú staðið um þó nokkurt skeið, en í nóvember lauk SPITAL hönnunarteymið við forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4. apríl.