Góður gangur í uppsteypu meðferðarkjarnans

16. apríl 2021

Vinna við uppsteypu er í fullum gangi í grunni meðferðarkjarnans.

“Helstu verkþættir sem nú eru í gangi við uppsteypuna eru áframhaldandi þrif á klöpp og þrifalagssteypur. Vinna við mótauppslátt og járnabendingu undirstaðna er í fullum gangi og búið er að steypa töluvert af undirstöðum. Stærsta steypan hingað til var um 350 rúmmetrar en búast má við að þær verði mun stærri þegar kemur ofar í húsið.

Samhliða þessu stendur yfir vinna við jarðskaut og á næstunni hefst svo vinna við fyllingar og lagnir”, segir Eysteinn Einarsson staðarverkfræðingur hjá NLSH.