Lítið af veggjakroti í sumar

21. júní 2023

NLSH leggur mikið upp úr að framkvæmdasvæðið sé þrifalegt og vel hirt. Sumarstarfsmenn eru komnir til starfa og nú stendur m.a. yfir hreinsun á ytra byrði vinnubúða og fylgst með að græna girðingin í kringum svæðið sé snyrtileg. Gaman er að segja frá því að aldrei hefur verið minna af veggjakroti en í sumar. Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Gunnar Mikael og Húgó Fannar sumarstarfsmenn ásamt Þresti Ásgeirssyni verkefnastjóra.