Margt fram undan í byggingaframkvæmdum

29. janúar 2024

Nú í upphafi árs eru viðamikil verkefni fram undan, segir Árni Kristjánsson staðarverkfræðingur NLSH.

„Uppsteypa meðferðarkjarna er á lokametrunum og uppsetning útveggjaeininga komin á fulla ferð í vesturhluta hússins. Áfram er unnið að uppsteypu við bílastæða- og tæknihús, ásamt bílakjallara undir Sóleyjartorgi, en þessum uppsteypuverkum mun ljúka síðar á þessu ári. Jarðvinna rannsóknahúss kláraðist í lok síðasta árs og hefur verktaki tekið við grunninum og hafið undirbúning uppsteypu. Jarðvinna í húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands er í vinnslu og er reiknað með að framkvæmdir við uppsteypu hefjist á næstu mánuðum. Áframhaldandi vinna við meðferðarkjarna er áætluð á árinu, eins og ílagnir, þakfrágangur og frekari undirbúningur lokafrágangs innanhúss. Einnig er áætlað að setja upp fyrstu lyfturnar í húsinu á þessu ári,“ segir Árni Kristjánsson staðarverkfræðingur NLSH.

Texti með mynd:Vinnuvélar í grunni við rannsóknahúsið og í bakgrunni gnæfir yfir hluti nýs meðferðarkjarna. Þar má sjá að uppsetning útveggja klæðningar á fyrsta turninn er komin á skrið. Út úr jarðvegsbakkanum má sjá op inn í tengiganga sem verða neðanjarðar og tengja saman byggingar á svæðinu